Bókin Leitin að Geirfinni rekur spor Geirfinns Einarssonar kvöldið 19. nóvember 1974 — og spor þeirra sem æ síðan hafa reynt að hylma yfir þau. Allar skýrslur lögreglunnar um atburði þessa kvölds eru afvegaleiðing frá því sem raunverulega gerðist. Í bókinni er rakinn framburður vitna sem annaðhvort heyrðu eða sáu atburði kvöldsins 19. nóvember.
Sölustaðir
Fyrir 50 árum hvarf Geirfinnur Einarsson í Keflavík. Hann var 32 ára, kvæntur tveggja barna faðir sem vann á þungavinnuvélum og hafði unnið heiðarlega fyrir öllum sínum veraldlegu eigum. Hann var vel liðinn af samstarfsmönnum, viðræðugóður, tefldi skák, spilaði bridds og las bækur, fékk sér í glas með félögunum en mætti alltaf til vinnu á tilsettum tíma og skilaði vönduðu verki. Geirfinnur þótti yfirvegaður náungi og manna ólíklegastur til að gera eitthvað geggjað, svona maður sem hverfur ekki bara allt í einu sporlaust á þriðjudagskvöldi. Það átti fyrir Geirfinni að liggja að verða aukapersóna í sínu eigin mannshvarfi.
Á þeirri vegferð var hann að ósekju bendlaður við smygl og önnur sakamál, sem aldrei var flugufótur fyrir. Við nafn hans var kennt eitt sóðalegasta misferli í íslensku réttarkerfi, þar sem fjöldi manna sat um lengri tíma í fangelsi undir grun um að aðild að hvarfi hans og nokkrir dæmdir fyrir að hafa drepið hann. Hæstiréttur og ríkissaksóknari stóðu árum saman gegn endurupptöku þeirra mála. Þegar Hæstiréttur loks sýknaði áður dæmdu af því að hafa drepið hann sat réttarkerfið uppi með óupplýst mannshvarf og lét þar við sitja.
Þessi bók er um leitina að Geirfinni. Leiðarljósið var að upplýsa mannshvarf en ekki að finna sökudólga að því mannshvarfi. Samt var ljóst að ef það tækist að upplýsa mannshvarfið yrði líklega flett ofan af sakamáli um leið.
Ráðgátan er leyst!
Fyrsta bókin sem Icelandia Bókaútgáfa gefur út er „Leitin að Geirfinni" eftir Sigurd Björgvin. Rannsókn Sigurdar tók 7 ár og afhjúpar örlög Geirfinns kvöldið 19. nóvember 1974. Höfundurinn gerði nokkuð sem lögreglan hefur aldrei gert — hann talaði við nágranna Geirfinns og vitni sem lögreglan hafði hunsað eða skipað að þegja um málið. Í bókarlok kemur í ljós hver var ábyrgur fyrir dauða Geirfinns.
Leitin að Geirfinni er ætlað að gera lögreglu og dómsvöldum auðveldara að „rannsaka" hvað varð um Geirfinn eftir 50 ára aðgerðaleysi. Orðið „rannsaka" er viljandi í gæsalöppum sem útskýrir sig sjálft þegar litið er til frétta, umræðu í þjóðfélaginu og útgáfu bókarinnar sem leysir morðmál sem íslenska lögreglan vill ekki að verði leyst.
Sigurd Björgvin
Sigurd Björgvin, höfundur bókarinnar „Leitin að Geirfinni", er grafískur blaðamaður á Morgunblaðinu með áratuga reynslu úr fjölmiðlum á Íslandi og í Danmörku.
Það sem byrjaði sem tómstundagaman, byggt á sagnfræðiáhuga Sigurdar, þróaðist yfir í réttarfarsrannsókn sem varð svo að bókinni um hvarf Geirfinns. Nú eru liðin tæp tíu ár frá því Sigurd hóf markvisst að safna efni í bókina, sem kom út í nóvember 2024, 50 árum eftir hvarf Geirfinns. Sigurd vinnur nú að öðru bindi um eftirmála dómsmáls Geirfinns og Guðmundarmála — átakanlegri bók en sú fyrri, sem fjallar um tilraunir sakborninga, aðstandenda og stjórnmálamanna til að fá allt málið endurupptekið — og baráttu kerfisins gegn því að sannleikurinn komi fram.
Jón Ármann Steinsson
Jón Ármann Steinsson er útgefandi og stofnandi Icelandia Bókaútgáfu sem gaf út bókina Leitin að Geirfinni eftir Sigurd Björgvin. Hann er einn af mörgum sem upplifðu Geirfinnsmálið á eigin skinni meðan það tók á sig mynd mesta réttarfarsglæps Íslands. Jón Ármann hefur ítrekað krafist þess að Geirfinnsmálið verði tekið upp að nýju og hefur fjallað um málið í blaðagreinum, sjónvarpsþáttum og viðtölum. Hann vinnur nú að leikinni þáttaröð um málið í samstarfi við erlenda aðila.
Hvað gerðist?
Hvernig verður skáldsaga til? Hér er ekki verið að tala um bókina Leitin að Geirfinni heldur sögusmíðar lögreglunnar í Keflavík á fyrstu dögunum eftir hvarf Geirfinns Einarssonar kvöldið 19. nóvember, 1974.
Rannsóknarteymi lögreglunnar samanstóð af tveimur mönnum. Æðsti embættismaður sýslunnar á þeim tíma var Valtýr Sigurðsson fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík. Honum til aðstoðar var Haukur Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður. Allt sem var skjalfest um rannsókn málsins var á ábyrgð Valtýs. Þá kemur í ljós að það sem var ekki fært til bókar var mun athyglisverðara en það sem var skráð.
Þarna, við gamlar ásláttarritvélar lögreglunnar og rafmagns kúluritvél á skrifstofu bæjarfógetans í Keflavík, hefst skáldsagan sem síðar fékk heitið Geirfinnsmálið. Náin tengsl í litlu bæjarfélagi á borð við Keflavík um miðjan áttunda áratug síðustu aldar urðu persónum og leikendum Geirfinnsmálsins hvatning til að setja saman allt aðra frásögn en þá sem raunverulega átti sér stað þetta kvöld. Útgáfa Valtýs Sigurðssonar og Keflavíkur lögreglunnar er svo sagan sem aðrir lögreglumenn tóku í hæstu hæðir skáldskapar um raðmorðingjann Sævar Ciecielski sem var pyntaður til að játa á sig glæpi sem aldrei höfðu átt sér stað.
- 26.5.2026DVSegir að Geirfinnur hafi verið skilinn þegar hann lét lífið – Ekkjan réðst í mikla fjársöfnun
- 15.5.2026DVHvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram
- 15.5.2026VísirVill að skipuð verði þingnefnd til að fara yfir rannsókn Guðmundar- og Geirfinnsmála
- 14.1.2026DVGeirfinnsmálið: Sakar Valtý um að hafa haft afskipti af vitnum og málsaðilum í 50 ár
- 24.12.2025DVSakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
- 30.11.2025VísirValtýr Sigurðsson: Hafnar ásökuninni um yfirhilmingu í Geirfinnsmáli
- 15.11.2025Útvarp SagaÞjóðin þarf að heyra sannleikann í Geirfinnsmálinu
- 13.11.2025Útvarp SagaMorðingi Geirfinns á lífi en samt ríkir þöggun og ábyrgðarleysi réttarkerfisins
- 12.11.2025DVSegir lík Geirfinns hafa verið flutt í bíl Svanbergs
- 12.11.2025Útvarp SagaJón Ármann: Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér
- 12.11.2025Útvarp SagaNý gögn varpa ljósi á yfirhylmingu í Geirfinnsmálinu
- 29.10.2025DVSoffía svarar Valtý: Þykir sérstakt að vinkona eiginkonu Geirfinns hafi aldrei hitt hann
- 11.10.2025VísirRannsókn lögreglunnar í Keflavík á Geirfinnsmálinu
- 11.10.2025VísirValtýr furðar sig á óhróðri, níði og aðdróttunum systkina
- 8.9.2025DV„Ég komst að þeirri niðurstöðu eftir nokkurra ára rannsóknir að ákveðinn einstaklingur væri banamaður Geirfinns“
- 6.9.2025DVGeirfinnsmálið: Haukur sakar Soffíu um lygar – „Valtýr var mjög vandaður og ábyggilegur embættismaður“
- 29.8.2025DVSegir miklar afhjúpanir í Geirfinnsmálinu framundan – „Þá förum við út með þetta“
- 27.8.2025VísirSporin þín Valtýr
- 21.8.2025mblFleiri en eitt vitni á Brekkubraut
- 21.8.2025mblLeita til ríkissaksóknara
- 25.6.2025VísirSegir ekkert hafa gerst hjá lögreglu síðan gögnum um hvarf Geirfinns var skilað
- 6.12.2024VísirHefur fengið hótanir eftir útkomu bókarinnar um Geirfinn
- 22.11.2024Útvarp SagaNýjar frásagnir vitna varpa nýju ljósi á Geirfinnsmálið
- 19.11.2024VísirSegist vita hver vó Geirfinn
- 19.11.2024mblTelur sig vita hvað gerðist
- 11.4.2023VísirHver verður krossfestur næst?
Sölustaðir
Háskólaprent
Eingöngu seld á netinu. Pantanir fást sóttar hjá Háskólaprent, Fálkagötu 2, Reykjavík.
Opið mán.–fös. 9.00–16.00. Fæst einnig send með Dropp á afhendingarstað um allt land.
Bóksala stúdenta
Sæmundargötu 4, Reykjavík (við hliðina á aðalbyggingu HÍ).
Opið mán.–fös. kl. 9.00–17.00. Fæst einnig send heim með Íslandspósti.